Fréttir

Körfubolti | 18. febrúar 2003

Damon sá um Valsara í afar slökum leik, 94-87

Það vantaði töluvert upp á stemminguna hjá Bikarmeisturum Keflavíkur í leiknum gegn botnliði Vals í gærkvöldi. Menn léku mest allan leikinn á hálfum hraða nema Damon sem setti 41 stig og virtist, eins og svo oft áður, geta skorað að vild.

Ed tróð nokkrum sinnum ágætlega en var annars slakur og linur undir körfunum. Skytturnar fundu heldur ekki fjalirnar sínar, nema helst Gunnar Stefánss sem kom inná í sínum 203. leik og smellti tveimur þristum úr tveimur tilraunum. Nafni hans Einarsson tók síðan af skarið í síðasta leikhluta og skoraði drjúgt. Magnús Gunnarsson átti nokkra ágæta spretti í leiknum og skoraði 17 stig.

En heilt yfir var leikurinn slakur og Keflavík náði aldrei að hrista Valsmenn af sér, þótt segja megi að sigurinn hafi aldrei verið í hættu, þegar gestirnir komust of nálægt þá skoraði Damon, svo einfalt var það. Munurinn rokkaði frá 0 og upp í 14 stig og endaði í 7 stigum, 94-87.

Valsmenn hafa eflst töluvert frá því í byrjun mótsins, en líklega hafa þeir styrkt lið sitt of seint á leiktíðinni, því fátt getur komið fyrir fall þeirra úr deildinni.

Ekki mun þessi frammistaða duga gegn KR-ingum á fimmtudaginn, þegar baráttan um annað sætið í Intersport deildinni er í algleymingi. Reyndar eru KR-ingar í þeim sporum að geta lent í 1., 2. og 3ja sæti, en Keflavík getur lent í 2. eða 3ja. Fyrsta og fjórða sætið eru einnig fræðilega möguleg, en frekar ólíkleg. Grindavík er í góðri stöðu á toppnum, en getur samt dottið niður í 2. sætið ef þeir tapa einum leik og KR vinnur Keflavík og restina.