Damon verður íslenskur – (fáránlegur fréttaflutningur DV)
Allar líkur benda til þess að Damon Johnson fái íslenskt ríkisfang á næstu dögum. Damon lagði inn umsókn fyrr á árinu og tók stjórn körfuknattleiksdeildarinnar þátt í því ferli með honum. Ástæða þess að Damon vill verða íslenskur ríkisborgari er tvíþætt, annars vegar líður honum vel hér á landi og vill halda þeim möguleika opnum að dvelja hér stóran hluta ævi sinnar og hins vegar opnar þetta honum dyr inn á evrópska leikmannamarkaðinn.
Damon hampar Kjörísverðlaunum 2002
Við óskum Damon til hamingju með ríkisfangið og við vitum að hann mun verða landi okkar og þjóð til sóma, enda drengur góður.
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar vill að gefnu tilefni taka fram að Damon er samningsbundinn Keflavík út þessa leiktíð og leikur því áfam hjá félaginu, nema eitthvað óvænt gerist. Liðið er nú “án Kana” en stefnan er ekki sú að ráða nýjan Kana til félagsins, þó vissulega verði þeim möguleika haldið opnum fram á síðustu stundu . . .
Óskar og DV á villigötum
Óskar tölfræði-gúrú Jónsson ritaði í DV í gær grein um “íslenskun” íþróttamanna og komst að þeirri undarlegu niðurstöðu að íþróttamaðurinn sjálfur græddi á ríkisborgararéttinum en að þjóðin græddi alls ekki neitt. Við skulum skoða þetta aðeins nánar:
Við erum sammála Óskari um að íþróttamaðurinn græði á þessu, annars væri hann vart að sækjast eftir þessu.
Hins vegar erum við afar ósammála Óskari um að þjóðin græði ekki á þessu.
Í fyrsta lagi “græða” Keflvíkingar á því að “eignast” frábæran körfuboltamann. Drengurinn hefur gert mikið fyrir körfuna í Keflavík og leggur verulega á sig til þess. Reikna má með því að hann muni leika hér um hríð sem Íslendingur (örugglega núna og mjög líklega að nýju í framtíðinni) og þannig styrkja íslenska deildarkeppni, þar sem svigrúm skapast til að ráða aðra Kana í hans stað.
Í öðru lagi “græðir” öll þjóðin á því að geta notað Damon í landsliðinu, því án nokkurs vafa er hann besti íslendingurinn í körfubolta í dag. Landsliðið styrkist því all-verulega og ef þjóðin “græðir” ekki á því, þá veit ég ekki hvað?
Í þriðja lagi “græðir” samfélagið á því að eignast nýjan meðlim sem eykur fjölbreytni mannlífsins í okkar litla samfélagi.
Í fjórða og síðasta lagi mun Damon eflaust bera ríkisborgararéttinn með sóma hvar í heimi sem hann verður og verður því eflaust góður fulltrúi Íslands víða um veröld. Við “græðum” líka á því.
Við skulum ekki vera með fordóma og neikvæðni gagnvart nýjum Íslendingum, heldur taka vel á móti öllum okkar gestum, ekki síst þeim sem unnið hafa sér inn lögbundinn rétt á að bera íslenskt ríkisfang.