Fréttir

Körfubolti | 17. nóvember 2004

Danski Björninn farinn að skjálfa

Danirnir í Bakken Bears eru að koma til landsins og það er greinilegt að þeir vita að það verður ekki auðvelt verkefni að vinna í 'slagethuset'.  Á heimasíðu þeirra kemur fram að Keflavík hafi ekki tapað í 3 1/2 ár á heimavelli.  Þar kemur einnig fram að Keflavík komist áfram úr riðlinum með sigri yfir Birninum Danska.  Það er því nokkuð ljóst að þeir eru tilbúnir og verða ekki með neitt vanmat eins og Reims frá Frakklandi. Úrslitin í gær komu líka á óvart þegar Reims tapaði á heimvelli fyrir CAB Madeira 80-83.