Derrota na Islândia - Tap á Íslandi er fyrirsögnin á heimasíðu Ovarense
Vefstjóri er ekki mæltur á portúgalska tungu, en með aðstoð net-þýðingarvélar hefur hann náð að skilja inntak greinarinnar (vonandi :-) sem birtist á heimasíðu Ovarense eftir tapleikinn í Keflavík.
Talað er um að leikmenn spænska þjálfarans Pepe Rodriguez hafi hreinlega frosið í um 40 mínútur í kuldanum á Íslandi. Lekmönnum eru ekki vandaðar kveðjurnar og heimasíðan segir að viljan hafi vantað. Einnig er rætt um að Keflavíkurliðið hafi komið á óvart sérstaklega í byrjuninni sem í raun hafi gert útslagið fyrir leikinn, þar sem þeir hafi verið að elta forskotið allan tímann.
Heimasíðan segir líka að þriggja stiga skotin hafi fallið sem sprengjur í móral Portúgalanna sem voru hvort tveggja í senn, undrandi og örvæntingarfullir. Rætt er um að Wilson hafi leikið mjög vel og að Morales og Jaimi hafi líka verið í lagi, en aðrir slakir og að þeir sem komu inn af bekknum hafi ekki náð að gera neitt betur. Einnig er rætt um að alla liðsheild hafi vantað, en hún sé einmitt það sem hafi skilað svo góðum árangri í deildinni (sem heitir Liga TMN) til þessa.
Svo var nú það . . . en ekki geta Keflvíkingar fagnað þessum sigri mikið lengur því næsti leikur er ekki langt undan, nefnilega Toulon í Frakklandi næsta fimmtudag. Áður en að því kemur er seinni leikurinn gegn Hamri í Hópbílabikarnum, en hann verður á sunnudag eða mánudag (átti að vera á mánudag, en sótt hefur verið um að færa hann fram á sunnudag, von er á svari mótanefndar á morgun).