Dickerson verður ekki í leikbanni á morgun
Eins og menn vita þá var Corey Dickerson vikið af leikvelli í gær. Slík brottvísun hefur nánast án undantekninga í för með sér leikbann, þó fer leikmaður ekki sjálfkrafa í bann, heldur þarf aganefnd að úrskurða um slíkt. Skv. reglugerð um aganefnd þá skal aganefnd kvödd saman um leið og kæra berst skrifstofu KKÍ, þegar í úrslitakeppni er komið. Ákæran barst snemma í dag, sunnudag. En samt reyndist ómögulegt að kveða saman aganefndina, en hún er skipuð 3 aðalmönnum og 3 varamönnum. Ástæðan var sú að tveir aðalmenn voru vanhæfir vegna tengsla við viðkomandi félög, Keflavík og Snæfell. Aðrir tveir voru í útlöndum, og þeir tveir síðustu vildu ekki taka af skarið, einhverra hluta vegna. Skv. heimildum verður aganefnd starfhæf á mánudag eða þriðjudag og mun þá taka kæruna fyrir. Því mun Dickerson taka út sitt bann í leik nr. 4 á laugard. 10. apríl og hugsanlega í leik nr. 5, miðvikud. 14. apr., ef hann verður dæmdur í tveggja leikja bann.
Snæfellingar hafa ákveðið að kæra Arnar Freyr og verður sú kæra væntanlega tekin fyrir á sama tíma.