Fréttir

Körfubolti | 26. janúar 2004

Dijon burstaði Le Havre 96-75

Vefstjóri kíkti á heimasíðu Dijon og sá að þeir tóku í dag á móti Le Havre sem var í 3ja sæti deildarinnar. Le Havre leikur í Meistaradeildinni og er gríðaröflugt lið. En Dijon-menn sem höfðu hrapað niður í 8. sæti eftir 4 tapleiki í röð segjast hafa fundið fyrri styrk eftir tvo erfiða leiki í Evrópukeppninni gegn Keflavík. Þeir tóku sig til og gengu frá Le Havre og unnu þá með mun meiri mun en þeir unnu okkur með á heimavelli sínum, 21 stigs sigur, 96-75. Þeir kappar Barret og Morlandes fóru aftur á kostum og gerðu 51 stig samtals, Barret 30 og Morlandes 21. Það var sannarlega enginn skömm að detta úr keppninni gegn svona topp-liði og uppörvandi að sjá að það eru fleiri en við sem eiga í erfiðleikum með þetta frábæra lið. Vonandi komast þeir sem lengst í Evrópukeppninni en við munum fylgjast með framvindu mála hér á heimasíðunni.