Fréttir

Körfubolti | 12. janúar 2004

Dijon sendir báða miðherjana heim!

Miðherjavandræðin hjá JDA Dijon, mótherjum Keflavíkur í 8 liða úrslitum Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu, halda áfram. Eins og heimasíðan hefur greint frá þá hafa tveir leikmenn verið fengnir til reynslu til Dijon vegna óánægju með frammistöðu Derricks Davenports sem leikið hefur í stöðu miðherja í vetur. Fyrst kom sá frægi Lee Benson en það gekk ekki upp og nú fyrir skemmstu var Hondre Brewer fenginn til reynslu. Samkvæmt heimasíðu Dijon var Brewer ekki nógu góður og verður þjónustu hans því ekki óskast. En ekki nóg með það, því Davenport hefur samkvæmt heimasíðunni leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Nýr miðherji mun væntanlega koma til liðsins á næstu dögum, en engin nöfn hafa verið nefnd. Við fylgjumst með og látum ykkur vita . . .

Fyrri greinar um Dijon: