Dómaranámskeið í Keflavík 25.-27. nóvember
KKÍ stendur fyrir dómaranámskeiði í Keflavík frá föstudegi til sunnudags, dagana 25.-27. nóvember 2016. Athygli er vakin á að námskeiðin verða ekki í fjarnámi, heldur fer bóklegi hlutinn fram í kennslustofu. Verklegi hlutinn verður eftir sem áður í íþróttasal.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 24. nóvember. Námskeiðin standa öllum til boða, veita fullgild dómararéttindi og munu kosta 5.000,- kr.
Bent er á a leikreglur er að finna á kki.is
Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, símanúmer, netfang og félag.