Dominosdeild kvenna: Keflavík - Snæfell 12. des
Í þessari 10. umferð Dominosdeildar kvenna fá Keflavíkurstúlkur Snæfell í heimsókn. Þar fer fremst í flokki fyrrum Keflavíkurmærin Bryndís Guðmundsdóttir og bjóðum við hana velkomna aftur á heimaslóðir. Snæfell hefur leikið gríða vel það sem af er vetri og sitja þær á toppi deildarinnar sem stendur með 8 sigra og 1 tap. Keflavíkurstúlkur eru hinsvegar í því fjórða, jafnt á stigum með Val.
Frítt verður á leikinn og við hvetjum sem flesta til að mæta og styðja ungt og efnilegt Keflavíkurliðið áfram!