Fréttir

Dominosdeildin aftur af stað
Körfubolti | 14. janúar 2021

Dominosdeildin aftur af stað

Dominos deildin er farin af stað aftur.
Stelpurnar áttu sinn fyrsta leik í gærkvöldi á móti Breiðablik. Þær náðu að knýja fram sigur í leiknum. Breiðablik var yfir meirahluta leiksins og það virtist vera smá ryð í okkar leik. En með elju og miklum karakter sigldum við þessu í höfn í síðasta leikhlutanum en hann unnum við 19-6. Vel gert stelpur!!!
Staðan eftir 1. leikhluta 21-13
Staðan eftir 2. leikhluta 40-36
Staðan eftir 3. leikhluta 50-47
Staðan eftir 4. leikhluta 56-66
Tölfræði leikmanna
Daniela Wallen 19 stig - 11 fráköst - 6 stolnir
Emelía Ósk 9 stig - 3 fráköst
Salbjörg 8 stig - 9 fráköst
Anna Ingunn 8 stig - 4 fráköst
Erna Hákonar 8 stig - 5 fráköst
Næsti leikur hjá stelpunum er svo á laugardaginn í Blue Höllinni gegn Fjölni og hefst hann kl. 16:00 og að sjálfsögðu í þráðbeinni á KEF Tv.
Strákarnir fara svo af stað á föstudagskvöldið og eiga þeir leik gegn Þór Þorláksshöfn hér í Blue höllinni kl. 20:15 og verður hann sýndur í beinni á Stöð 2
Allir leikir eru án áhorfenda !
Áfram Keflavík