Dominosdeildin kemur úr jólafríi
Nú er Jólafríi Dominosdeildarinnar lokið og halda liðin aftur á parketið eftir gott frí. Stelpurnar ríða á vaðið er þær halda til Grindavíkur í kvöld en leikið verður á hinum vanafasta tíma kl. 19:15
Strákarnir eiga svo leik á fimmtudaginn næstkomandi í TM-höllinni þar sem Þór frá Þorlákshöfn mætir í heimsókn og viti menn, sá leikur verður einnig kl 19:15.
Liðin stefna auðvitað bæði á að taka upp þráðin þar sem frá var horfið fyrir jól en bæði stákarnir og stelpurnar fóru með góða sigra inn í jólafríið.
Áfram Keflavík