Fréttir

Karfa: Karlar | 5. mars 2012

Douse drekinn

Kristoffer Douse verður ekki meira með Keflavík í Iceland Express-deildinni í körfubolta þessa vertíðina en kappanum hefur verið sagt upp störfum. Douse lék því sinn síðasta leik fyrir Keflvíkinga þegar liðið lagði Snæfell í Iceland Express deild karla í síðustu viku. Stjórn KKD Keflavíkur ákvað í samráði við Sigurð Ingimundarson,þjálfara, að segja upp samningnum við Douse. Hann þótti ekki standa undir væntingum sem til hans voru gerðar.

Kristoffer Douse lék sex deildarleiki með Keflavík og varð einnig bikarmeistari með félaginu. Douse gerði 9,5 stig og tók 4,2 fráköst með Keflvíkingum í deildarkeppninni.