Dregið á sunnudaginn í FIBA Bikarkeppni Evrópu
Á komandi leiktíð verða tvær Evrópukeppnir á vegum FIBA. Önnur er Evrópudeildin (FIBA Europe League) og hin er Bikarkeppni Evrópu (FIBA Europe Cup), en í þeirri keppni munu Keflvíkingar taka þátt. Um helgina verður dregið í riðla í München í Þýskalandi, á laugardaginn í Evrópudeildina og á sunnudaginn í Bikarkeppnina. Unnt er að fylgjast með drættinum í beinni á heimasíðu FIBA, www.fiba.com.
Formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, Hrannar Hólm, verður viðstaddur dráttinn fyrir hönd Keflvíkinga, en mikilvægt er að eiga fulltrúa þar, því færi mun gefast á að semja um leikdaga eftir hádegi á sunnudaginn, en síðan ekki eftir það.
Keflavík leikur í Vesturdeildinni og má telja líklegt að móteherjarnir komi t.d. frá Portúgal og Frakklandi, en listi yfir öll liðin er birtur á heimasíðu FIBA. Þar kemur í ljós að flest liðin eru frá Austur Evrópu en frá vesturhlutanum eru m.a. fjögur lið frá Portúgal, eitt frá Frakklandi, tvö frá Þýskalandi og tvö frá Sviss. Það væri ákjósanlegt að mótherjar okkar væru frá þessum löndum og hugsanlegt er að við gætum náð að leika þrjá útileiki okkar í tveimur ferðum og þannig spara umtalsverðan ferðakostnað.