Dregið verður í undanúrslitum Bikarkeppninnar í dag - Keflavík á lið í keppni karla og kvenna
Nú er farið að styttast í sjálfan Bikarúrslitaleikinn og aðeins fjögur lið eftir í Bikarkeppnum karla og kvenna. Etir eru
- KARLAR: Hamar, ÍR, Keflavík og Snæfell
- KONUR: Grindavík, ÍS, Keflavík og KR
Segja má að kvennaliðin séu skv. "bókinni" en hjá körlunum vekur óneitanlega athygli að mörg sterk lið eru fallin úr keppni. Keflavík hefur slegið tvö þeirra út, Njarðvík og Hauka og þar áður lögðu Njarðvíkingar Grindavík og ÍR sló KR út. En allt getur gerst í bikarnum!
Stúlkurnar okkar hafa leikið frábærlega og unnu sér rétt til þátttöku í undanúrslitunum með því að leggja B-liðið að velli á laugardaginn. Hér að neðan má sjá mynd af liðunum: