Fréttir

Körfubolti | 16. janúar 2003

Drengjaflokkur á sigurbraut

Drengjaflokkurinn í Keflavík lék á sunnudag og mánudag s.l. Þeir léku vel og hér fylgir smá pistill um strákana:

Sunnudagur 12. jan Kef-Stjarnan 113-40 í 16 liða úrslitum Bikarkeppninnar

Drengirnir komu mjög ákveðnir til leiks með þá Óla Geir, Dóra, Atla, Gunna, Jón Gauta og Hinna í fararbroddi, auk annarra mjög efnilegra leikmanna sem með góðu samstarfi gáfu tóninn með góðum leik. Óli Geir var gjörsamlega óstöðvandi í byrjun leiks og setti hverja körfuna á fætur annarri. Fljótlega kom í ljós að Keflavíkingar voru komnir mun lengra á flestum sviðum körfuboltans.

Í hálfleik voru Keflavíkingar með í kringum 45 stiga forystu og leit út fyrir auðveldan seinni hálfleik. Strákarnir héldu einbeitningunni út allan leikinn og er þjálfurunum þeim Jóni Guðmunds og Bödda ekki síst fyrir það að þakka, en þeir fengu drengina til þess að vinna á fullu út allan leikinn þrátt fyrir að mótspyrnan hafi ekki verið eins mikil og oft áður.

Einhverra hluta vegna þá hefur orðið mikið brottfall þeirra sem komnir voru hvað lengst í boltanum úr liði Stjörnumanna. Þegar leiknum lauk þá hafði Kef skorað 113 stig gegn 40 stigum Stjörnumanna. Stigahæstir voru Óli Geir 30 stig, Halldór Örn 22 stig og Atli 20 stig.

Búið er að draga í 8 liða úrslitum og munu drengirnir leika gegn Breiðablik.

Mánudagur 13. jan Kef-UMFG 85-48 á Íslandsmóti

Aftur koma drengirnir öflugir til leiks. Reyndar lentu þeir í smá basli í byrjun leiksins, en þegar liðnar voru í kringum 7 mín tóku þeir öll völd á vellinum. Atli fann þriggja stiga fjölina og skoraði hann fimm þrista í röð á skömmum tíma. Dóri lenti í villuvandræðum snemma leiks. Kolli lék mjög góða vörn á öflugasta leikmann UMFG. Honum gekk einnig mjög vel undir körfunni í fráköstunum og stigaskoruninni.

Kef hafði um 25 stiga forystu í hálfleik. Í þeim seinni héldu drengirnir áfram einbeitningunni og flestir boltar höfnuðu í körfunni á meðan lítið gekk hjá UMFG. Mótspyrnan fór greinilega ílla í leikmenn UMFG sem sýndi sig meðal annars í því að tveir leikmenn voru útilokaðir frá leiknum undir lokin.

Miður þótti mér að sjá að þeir efnilegustu í UMFG frá síðustu leiktíð voru ekki með í leiknum, hverju sem það sætir? 
Leikurinn endaði með sigri Kef 85 stig gegn 48 stigum andstæðinganna. Stigaskor Kef:  Atli 22 stig, Kolli 14 stig, Hinni 14 stig, Dóri 13 og aðrir færri stig. Svenni Skúla var ekki með í ofangreindum tveimur leikjum sökum meiðsla, en vonandi kemur hann fljótlega aftur inn.

Höf: Elías Kristjánsson