Drengjaflokkur lagði drengjalandsliðið í gærkvöldi
Drengjaflokkur, undir stjórn Kevins Grandberg, sýndi á köflum ágætan körfubolta í gærkvöldi þegar strákarnir lögðu drengjalandsliðið að velli í bráðskemmtilegum leik.
Jafnt var framan af leiknum, en landsliðið leiddi þó í hálfleik með fimm stigum, 40-45. Í byrjun seinni hálfleiks tóku okkar drengir að koma boltanum inn á Halldór Halldórsson sem var eins og kóngur í ríki sínu undir körfunum. Halldór virtist geta skorað að vild og forskot Keflavíkurpilta byggðist upp, jafnt og þétt, og var orðið átta stig, 62-54.
Þá fékk Halldór sína fjórðu villu og yfirgaf leikvöllinn. Við það riðlaðist leikur okkar manna um stund og landsliðspeyjar, undir forystu Njarðvíkingsins Jóhanns Ólafssonar, gengu á lagið og jöfnuðu leikinn.
En með mikilli baráttu náðu þeir Sveinbjörn, Atli, Kristján og félagar að ná aftur tökum á leiknum og ´"héldu haus" eins og oft er sagt í boltanum. Síðan kom Halldór aftur inná og eftirleikurinn varð auðveldur. Um 15 stiga sigur var staðryend.
Drengirnir eru í framför um þessar mundir og vonandi verður meira um skemmtilega leiki hjá þeim á næstunni.