Fréttir

Körfubolti | 22. apríl 2007

Drengjaflokkur leikur til úrslita kl 16 í dag

Keflavík átti þrjú lið í undanúrslitum á Íslandsmóti yngri flokka í gær og á föstudag. Stúlknaflokkur beið lægri hlut gegn Haukum, 49-74 á föstudagskvöldið og í gær tapaði einnig 10. flokkur kvenna fyrir Haukum í spennandi leik, 42-43. Drengjaflokkur náði nokkuð sannfærandi sigri gegn Fjölni, þó eftir sveiflukenndan leik, lokastaðan var 85-50. Sigurður Þorsteinsson var bestur Keflvíkinga, gerði 25 stig og hirti 19 fráköst.

Tölfræði leikjanna má finna á heimasíðu KKÍ, undir "Leikvarp".

Keflvíkingar mæta KR-ingum í úrslitaleiknum í dag, hefst leikurinn kl. 16 í Laugardalshöll.