Fréttir

Körfubolti | 18. nóvember 2003

DV Sport er hreinasta hörmung!

Margir voru glaðir þegar fréttist að blása ætti lífi í DV og efla blaðið til dáða. Þeir sem fögnuðu hvað mest voru örugglega íþróttaáhugamenn og ekki síst áhugamenn um körfubolta. Ástæðan? Jú ósköp einföld, íþróttaumfjöllun "gamla" DV var til fyrirmyndar og eflaust það besta sem blaðið bauð upp á.

En nú eru komnir nýir eigendur og ákveðið hefur verið að prenta blaðið fyrir kvöldmat hvern dag. Þetta þýðir að íþrótta"fréttir" eru nánast óhugsandi, því íþróttakappleikir eru jú ansi oft eftir kvöldmat. Í staðinn mun DV, ef marka má fyrstu dagana, flytja þreyttar hugleiðingar um hvort Einhver Jónsson gefi kost á sér í C-landsliðið og síðan geta menn lesið pælingar af netinu um enska fótboltamenn, hvort þeir hafi gert eitthvað af sér nýlega. En öll alvöru umfjöllun um körfubolta - sem var til fyrirmyndar - og líka handbolta og aðrar íþróttir er á bak og burt.

Það er skiljanlegt að nýjir eigendur vilji bæta ýmislegt í DV en að slátra því eina sem var verulega gott er undarlegt. Nú er Mogginn einn eftir af dagblöðunum sem birtir íþróttafréttir því Fréttablaðið er, líkt og DV, handónýtt í þeim málum.

Ég keypt DV mjög oft í lausasölu, og alltaf þegar ég vissi um góða körfuboltaumfjöllun. En það er akkúrat engin hætta á að ég kaupi nýja DV fyrr en íþróttaFRÉTTIR, sérstaklega um körfubolta, rata aftur inn á síður blaðsins.