Dyggur stuðningsmaður fellur frá
Stjórn Keflavíkur vill nota tækifærið til þess að heiðra minningu stuðningsmanns liðsins sem er fallinn frá.
Gunnar Þór Sveinbjörnsson lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á s.l. þriðjudag eftir hetjulega baráttu við krabbamein, 61 árs að aldri. Gunnar var dyggur stuðningsmaður Keflavíkur til margra ára og vann mjög óeigingjarnt starf fyrir körfuna á hverju tímabili, ásamt því að eiga tvo spilandi syni með aðal- og b-liði Keflavíkur og eiginkonu sem sat í stjórn Körfuknattleiksdeildarinnar í mörg ár. Gunnar lét sig aldrei vanta á leiki á stuðningsmannabekkinn til að hrópa hvatningarorð að liðinu, ásamt því að bjóða öllum leikmönnum liðsins inn á heimili sitt fyrir hvern leik í mat.
Gunnar lætur eftir sig eiginkonu, tvo uppkomna syni og eina uppkomna dóttur. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur vill þakka Gunnari fyrir samveruna með félaginu, fólkinu og liðinu í gegnum árin.
Stjórnin vottar fjölskyldu Gunnars sína dýpstu samúð.