Fréttir

Körfubolti | 1. apríl 2003

Ed á förum?

Skv. heimildum heimasíðunnar eru taldar verulegar líkur á að hinn magnaði leikmaður Keflavíkur, Ed Saunders, þurfi að halda heim til Bandaríkjanna í  dag. Ástæðan er sú að honum stendur mögulega til boða að fá þjálfarastarf við Connecticut háskólann (U-Conn, gamli skólinn hans) og þarf hann að mæta í þessari viku í viðtöl o.fl. til að festa starfið sem er mjög eftirsótt.

Ef af verður mun hann hefja strax störf þó körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafi þegar sett sig í samband við U-Conn og reynt að semja um að Ed fái að klára leiktíðina hér. Ekkert er ljóst í þeim efnum ennþá, en líklegt verður að telja að Ed verði ekki með í öllum leikjunum í úrslitunum gegn Grindavík eða Tindastóli. Þetta er verulegt skarð fyrir skildi fyrir Keflavík en hinir leikmennirnir verða þá bara að leggja enn meira í leikinn.

Meira um þetta síðar.