Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2003

Eddi ekki á förum!

Sælt veri fólkið.

Ég er sjóðheitur keflvíkingur, en þar sem ég er námsmaður erlendis, verð ég að fylgjast með í gegnum internetið, og nú þegar ég fékk fréttir um að Eddi væri að fara að þjálfa í US fékk ég sjokk, en svo var ég að vona að þetta væri apríl gabb (greinin var skrifuð 1.april) en þetta hefur hvorki verið staðfest né dregið tilbaka, getið þið vinsamlegast staðfest þetta eða dregið þetta til baka, ekki það að við vinnum ekki Grindjánana en ég er með veðmál í gangi hér við einn frá Grindavík.

Með von um aprílgabb

Venlig hilsen

Guðlaugur H Sigurjónsson
Engblommevej 71
8700 Horsens
Denmark

p.s. Til lykke með stelpurnar

 

Svar Heimasíðunnar:

Já þú hittir naglann á höfðið - þetta var aprílgabb, Eddi fer hvergi. En þú varst alls ekki einn um að hafa fengið vægt sjokk því margir bitu á agnið og höfðu samband vegna "fréttarinnar". Gaman að heyra frá þér og gott að vita til þess að fylgst sé með okkur víða um veröld! Nú þurfa bara strákarnir að feta í fótspor stúlknanna og landa þeim stóra á næstu dögum. Við vitum að það verður allt annað en létt verk, en skorum samt á þig að taka sénsinn og leggja vel undir . . .