Edmund Saunders til Keflavíkur
Í morgun kom til Keflavíkur Bandaríkjamaðurinn Edmund Saunders. Hann er 24 ára, rúmir 2 metrar á hæð (6 fet 8 tommur) og lék á sínum tima með Háskólanum í Conniecticut (U-Conn). Hann vann sér það til frægðar að hafa verið Bandaríkjameistari í háskólakörfubolta árið 1999. Hann var að vísu ekki einn af aðalleikurunum en þótti skila sínu hlutverki vel og skoraði á háskólaferlinum um 8 stig að meðaltali í leik og hirti um 6 fráköst.
Líklegt er að Saunders gangi til liðs við Keflavíkur á næstu dögum.
Síðan þá hefur hann reynt ýmislegt, en lítið hefur gengið svo honum þótti það ekki slæmur kostur að koma til Íslands og hitta vin sinn hér og athuga hvort hann gæti komið sér á körfuboltakortið á ný. Ekki er litið á Saunders sem stórstjörnu sem á að "redda málunum" heldur er vonast eftir því að hann gefi liðinu þann styrk undir körfunum sem nauðsynlegur er til að ná þeim árángri sem við vonumst eftir.
Vegna spurninga sem kunna að vakna um fjárhagslegu hliðina skal fram tekið að svo hefur verið um hnútana búið að koma Saunders mun ekki hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir deildina, nema kannski að óverulegu leyti.