Fréttir

Körfubolti | 31. mars 2003

Eftir góðan útisigur eru KEF-KONUR aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum

Það var vitað mál að annar leikurinn gegn KR í úrslitaeinvíginu yrði ekki léttur göngutúr líkt og sá fyrsti. En Keflavíkurkonur stóðust áhlaup KR-inga hvað eftir annað í leiknum og unnu góðan 12 stiga sigur, 70-82, eftir að hafa leitt mest allan seinni hálfleikinn með 6-10 stigum.

Fyrri hálfleikur var jafn og skemmtilegur og áhorfendum var boðið upp á íslenskan kvennakörfubolta eins og hann gerist bestur. Jessica Stomski var sterk undir körfunum og skoraði grimmt í fyrri hálfleik, þrátt fyrir harða vörn frá Erlu og Önnu Maríu. En baráttan tók sinn toll af Jessicu og réð hún ekki við varnarleikinn í seinni hálfleik.

Stóru stelpurnar okkar, Erla og Anna María, áttu báðar stórleik, skoruðu 18 og 16 stig, hirtu fjöldann allan af fráköstum og stöðvuðu Stomski í seinni hálfleiknum. Svava átti frábæra innkomu í fyrri hálfleik og smellti þremur skotum í körfuna á stuttum tíma og náði þá Keflavík smá forskoti sem dalaði þó fljótt aftur, ekki síst fyrir góða hittni Hildar og Helgu Þorvaldsdóttur hjá KR.

Staðan í hálfleik var 32-38 en KR jafnaði í 39-39 og leikurinn var í járnum í nokkrar mínútur. En þá fór aggressívur varnarleikur Soniu og Birnu að skila sér og okkar stúlkur náðu nokkrum hraðupphlaupum og byggðu upp forskot sem dugði út leikinn. Við upphaf síðasta leikhluta var munurinn 7 stig, 49-56.

Ósvaldur, KR þjálfari, breytti þá um taktík og lét stúlkurnar sínar leika svæðisvörn sem stundum hefur hægt verulega á Keflavíkurliðinu. En þær létu ekki slá sig út af laginu og Marín og Rannveig stjórnuðu leiknum ágætlega. Boltinn gekk leikmanna á milli og Anna María átti góðar sendingar á fría meðspilara. Eins áttu Kristín og Svava góðar keyrslur upp að körfunni og splundruðu vörninni í nokkur skipti á skemmtilegan hátt. Enda skipti KR fljótt aftur í maður-á-mann vörn.

Forysta stúlknanna var mest 16 stig, 55-71 þegar um fimm mínútur lifðu leiks. Héldu þá margir að björninn væri unninn, en svo var ekki. KR gerði ágætis áhlaup og okkar stúlkur gerðu sig sekar um óþarfa kæruleysismistök. Munurinn minnkaði í 9 stig þegar um þrjár mínútur voru eftir. Þá gerði Erla Þorsteinsdóttir nánast út um leikinn með glæsilegri körfu þar sem hún fiskaði í leiðinni 5. villuna á Jessicu Stomski. Eftir það fóru KR-ingar að brjóta af sér í gríð og erg en það bar ekki tilætlaðan árangur.

Öruggur Keflavíkursigur var staðreynd og nú þurfa okkar stúlkur aðeins einn sigur úr næstu þremur leikjum til að tryggja sér sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Næsti leikur er á miðvikudaginn og hver veit, ef vel tekst til ná þær kannski að hampa bikarnum að þeim leik loknum? Vonandi mæta sem flestir Keflvíkingar í íþróttahúsið við Sunnubraut og hvetja stúlkurnar til dáða – ÁFRAM KEFLAVÍK!!