Fréttir

Körfubolti | 6. október 2003

Einar getur bætt við starfsfólki

Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar hefur mörg störf með höndum. Mikið er fundað og stjórnin reynir að sjá til þess að starfið gangi eðlilega og að liðum félagsins sé ekkert að vanbúnaði að standa sig vel. Þar er um að ræða ýmis fjármál og alls konar utanumhald og framkvæmdir. Framkvæmd leikja er verulega mikilvægt atriði og hefur Keflavík lengi lagt metnað í að umgjörð leikja sé eins og best verður á kosið. Slík umgjörð kallar á marga starfsmenn sem sinna gæslu, ritara- og tímastörfum, uppetningu auglýsingaskilta og mörgu fleira. Einar stjórnarmaður Skaftason er okkar leikja-gúrú og heldur styrkum höndum um framkvæmdina. Honum til aðstoðar eru margir vaskir menn sem skipta með sér verkum.

Einar vildi koma því á framfæri að hann gæti notað nokkrar hjálpsamar hendur í viðbót til að gera gott starf enn betra. Hér með er því komið til skila og áhugasömum bent á að hafa samband við Einar eða þá einhvern af hinum stjórnarmönnunum. Í boði er skemmtilegt starf og skemmtilegir leikir og launin eru góð - gleði og ánægja . . . og tilfinningin sem fylgir því að vera partur af vinningsliði.