Einbeitingalausir Keflvíkingar lágu fyrir KR-ingum, 88-90
Það er merkilegt hvað sama liðið með sömu leikmönnum getur leikið tvo misgóða leiki með aðeins 2ja daga millibili. Það er greinilegt að leikmenn eru spenntir og rétt stemmdir fyrir Evrópukeppnina en jafn greinilegt er að inn á milli geta þeir dottið niður í algera meðalmennsku eins og gerðist í kvöld. Þótt liðið sé líklega með betri menn í öllum stöðum tókst því ekki að nýta þá styrkleika í kvöld og tapaði gegn KR með tveimur stigum, 88-90. Það er nefnilega gömul saga og ný að góðir leikmenn eru ekki góðir nema þeir mæti með réttu hugarfari í leik. Í kvöld var hugarfarið frekar letilegt sem best sást á því að varnarleikurinn var skelfilegur og reyndu okkar menn lítið til að hindra KR-inga í stigaskorun. Þetta er reyndar beint framhald frá því í fyrra, en þá gekk okkur illa á útivöllum, allt fram að úrslitakeppninni. Vonandi er hægt að læra á þeirri reynslu, þó vissulega geti verið erfitt að ná upp topp einbeitingu í svona "venjulegum" leikjum, þegar hugurinn er við stórleikina í Evrópukeppninni.
Um leikinn er lítið að segja nema að við vorum slakir mest allan tímann, þá sérstaklega í vörninni. Fráköstin voru ekki til staðar og lítill hreyfanleiki. Glover (30 st) var góður og Nick (18 st) og Gunni Einars (16 st) ágætir, aðrir voru langt frá sínu besta nema kannski Elentínus sem átti stutta en spræka innkomu.
KR-ingar voru miklu sprækari og líflegri, þeirra bestu menn voru kanarnir, t.d. setti Garris niður þrjá þrista í lokin. Eins var Ólafur Ægisson beittur í fyrri hálfleik, hann skoraði 16 stig á stuttum tíma.