Einbeitingarleysi varð okkar mönnum að falli í Grindavík
Grindvíkingar jöfnuðu metin í 8-liða úrslitunum í dag með 10 stiga sigri, 85-75. Okkar menn voru afar slakir í dag og einbeitingarleysið var allsráðandi. Leikmönnum virtist fyrirmunað að koma boltanum ofan í körfu andstæðinganna, jafnvel úr galopnum færum alveg upp við körfuna. Heimamenn voru brattari og uppskáru sanngjarnan sigur, ekki síst vegna Helga Jónasar sem var okkur erfiður. Nú er fjör framundan á miðvikudaginn. Meira síðar....