Fréttir

Karfa: Konur | 29. mars 2008

Einvígi Keflavíkur og KR hefst kl. 16.00

Barátta Keflavíkur og KR hefst stundvíslega kl.16.00 í Toyotahöllinni á sunnudaginn. Keflavík sló Hauka 3-0 en KR hafði betur í 5. leikja seríu gegn Grindavík. 

KR hefur á að skipa mjög sterku liði og hefur komið nokkuð á óvart í vetur.  Þær komu upp um deild fyrir ári og fengu til liðs við sig nokkra sterka leikmenn s.s Hildi Sigurðardóttir. Stigahæstar í leikjunum 5. gegn Grindavík voru Candace Futrell með 27. stig, Hildur 21.stig og Sigrún 13.stig . Þessar þrjár bera nokkuð af í stigaskori með 61 stig af 79 stigum liðsins.

Í borgar-skotleik Iceland Express verður skotið upp á ferðir til Parísar.

París: fögur og rómantísk heimsborg, og ekki orð um það meir.