Ekki ljóst hvort Gunni leiki með á miðvikudag
Ekki er ljóst hvort Gunnar Einarsson muni leika með á móti Grindavík á miðvikudag. Gunnar slasaðist sem kunnugt er í leiknum í Grindavík á laugardag. Líkurnar á að hann spili verða að teljast frekar litlar, þó ekki sé búið að útiloka neitt. Gunni spilaði mjög vel í fyrsta leiknum í Keflavík og skoraði 19 stig. Hér_er_myndbrot_með_Gunna_úr_leiknum_í_Keflavík.