Fréttir

Körfubolti | 17. febrúar 2003

Ekki tvö slys á átta dögum! KEF-KONUR burstuðu ÍS 96-39

Allir þeir sem sáu leikinn í gærkvöldi milli Keflavíkur og ÍS gátu ekki komist hjá því að spyrja einnar spurningar: Hvernig gat Keflavík tapað fyrir ÍS í bikarúrslitunum? En það er víst búið og gert og sýnir ekki síst hvað körfuboltinn er mögnuð íþrótt, ekkert er öruggt, enginn leikur er unninn fyrirfram, sama hvað menn halda.

En það var hins vegar fyrirfram vitað að Deildarmeistarar Keflavíkur myndu mæta grimmar til leiks gegn Bikarmeisturum ÍS. Þær ætluðu að sýna að úrslitin í Bikarnum voru slys sem ekki myndi endurtaka sig. Og akkúrat það sýndu þær. Keflavíkurliðið gjörsamlega yfirspilaði ÍS frá fyrstu mínútu þannig að úrslitin voru í raun ráðin eftir nokkrar mínútur.

Kristín Blöndal fór hamförum í byrjun og raðaði niður körfunum, alls gerði hún 23 stig í leiknum. Forystan byggðist hratt upp og ljóst var í hvað stefndi. Um miðjan annan leikhluta skoraði Erla stig númer 50 fyrir Keflavík og þá hafði ÍS aðeins gert 14. Yfirburðirnir voru algjörir og í lokin skildu 57 stig liðin að, hvorki meira né minna, og Keflavík sigraði 96-39.

Keflavíkurliðið var sannfærandi í leiknum en að sama skapi var engin stemming í liði ÍS. Það var engu líkara en að þær vissu hvað myndi gerast. Allar Keflavíkurstúlkurnar léku mikið í leiknum og öllum tókst að skora, auk Kristínar skoruðu þær Erla, Birna, Sonia og Svava mest, en Svava skellti niður þremur þristum úr jafnmörgum tilraunum.

Nú á Keflavík aðeins þrjá leiki eftir í deildinni áður en úrslitakeppnin hefst. Sá næsti er gegn Njarðvík á sunnudaginn kemur og þar á liðið líka harma að hefna.