Ekki verður höfðað mál gegn Fannari - ásakanir reyndust tilhæfulausar
Eins og heimasíðan greindi frá fyrr á árinu hefur komið í ljós við nánari rannsókn að ekki reyndist fótur fyrir þeim þungu ásökunum sem bornar voru á hendur Fannari Ólafssyni. Ekki verður höfðað mál gegn honum því ásakanirnar reyndust tilhæfulausar. Erfiðir tímar eru nú að baki hjá Fannari því mikið álag fylgir því að hafa svona skelfilegar ásakanir á bakinu, ekki síst þegar þær eru blásnar upp með stórum myndum og æsilegum fyrirsögnum eins og DV gerði á sínum tíma. Fróðlegt verður að sjá hvort DV finnist sakleysi Fannars jafn fréttnæmt og ásakanirnar í hans garð. Vonandi spyr ritstjórn DV sig að því nú hver tilgangurinn hafi verið með blaðamennsku sinni. Áberandi afsökunarbeiðni væri vel við hæfi, því verulega var vegið að mannorði Fannars.
Fannar varð afar glaður þegar honum bárust þessi tíðindi í dag og fannst honum að þungu fargi væri létt af sér. Enda sagðist hann hafa hoppað hátt og troðið mikið á æfingu í dag, en hann er sem stendur við æfingar í Grikklandi. Heimasíðan sendir Fannari og fjölskyldu hans bestu kveðjur og samgleðst þeim yfir því að þetta leiðindamál er nú loks að baki.