Fréttir

Körfubolti | 1. mars 2004

Engin vandræði hjá Keflavíkurkonum gegn Casie Lowman & Co.

Casie Lowman, nýji Kaninn þeirra ÍS-inga var allt í öllu hjá ÍS í kvöld, en hún gerði 26 stig af 61. Það dugði þó skammt gegn Deildar-, Bikar- og Íslandsmeisturum Keflavíkur sem rúlluðu næsta auðveldlega yfir ÍS í Kennaraháskólanum. Að loknum fyrsta leikhluta var reyndar jafnt, 14-14, en Keflavík náði 14 stiga forskoti í næstu tveimur leikhlutum og sigraði í lokin með 16 stigum, 77-61.

Anna María átti stórleik í kvöld, en hún gerði 21 stig, tók 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Birna (18 stig, 9 fráköst) og Erla Þorsteins  (13/12) áttu einnig góðan dag og Marín Rós (11/7 og 3 3ja) lék einnig sérlega vel.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Þegar ein umferð er eftir í deildinni eru allar líkur á því að Keflavík mæti Grindavík í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Þó gæti Grindavík náð 3ja sætinu af KR ef Njarðvík vinnur KR og ef Grindavík vinnur síðan KR með 7 stigum eða meira.

Síðasti leikur okkar stúlkna er gegn Njarðvík næsta mánudag, 8. mars, kl. 19.15.