Fréttir

Körfubolti | 18. mars 2004

Enginn Kani á leiðinni til Kef

Til að kveða niður orðróm þá vill stjórn körfuknattleiksdeildarinnar árétta að ekki stendur til að fá nýjan Kana til liðs við félagið nú á lokasprettinum, þrátt fyrir að sá möguleiki hafi verið diskúteraður, ekki síst á spjallþráðum, í ljósi þess að bæði Grindavík og Njarðvík hafa styrkt sig.

Okkar leikmannahópur hefur tekið litlum breytingum frá því að Nick og Derrick komu til landsins s.l. haust. Falur hefur að vísu dottið út vegna erfiðra meiðsla og Fannar gekk til liðsins um áramót. Annað hefur ekki breyst. Liðið hefur á stundum leikið glimrandi körfubolta, þá helst í Evrópukeppninni og Bikarkeppninni. Eins hefur liðið verið ósigrandi á heimavelli. Inn á milli hefur leikur liðsins dottið niður, ekki síst á útivelli, en allir vita hvað í strákunum býr, það hafa þeir sýnt gegn liðum sem eru mun sterkari en andstæðingarnir í Intersport-deildinni. Þess vegna hefur stjórnin ákveðið að standa þétt við bakið á leikmönnum liðsins og hvetja þá til dáða í stað þess að kalla eftir utanaðkomandi hjálp.

(Enda eru það undarlegar reglur sem leyfa slíkt á þessum tíma leiktíðar, eins og fram hefur komið, en það er annað mál og ekki við önnur félög að sakast í þeim efnum.)

Nú hefst fjörið fyrir alvöru og við Keflvíkingar munum standa þétt við bakið á okkar strákum í baráttunni. Við vitum nefnilega að ef okkar lið nær sínum besta leik þá stöðvar okkur ekkert.

ÁFRAM KEFLAVÍK!