Fréttir

Körfubolti | 25. nóvember 2004

Enn einn stórsigur hjá stúlkunum, nú gegn Haukum á Ásvöllum, 97-63

Keflavíkurkonur halda áfram sigurgöngu sinni og virðast í svaka formi um þessar mundir. Skiptir þá engu hvort leikið er á heimavelli eða útivelli. Fyrr í kvöld léku þær gegn nýliðum Hauka sem staðið hafa sig vel það sem ef er leiktíðinni og eru í fjórða sæti.

Þessi leikur þróaðist eins og svo margir aðrir. Keflavík pressaði grimmt og keyrði upp hraðann með þeim afleiðingum að andstæðingarnir misstu oft boltan og urðu ráðalausir. Besti leikmaður Hauka, Helena Sverrisdóttir, lenti þar að auki í villuvandræðum og þegar hún er utan vallar er fátt um fína drætti.

Reshea átti toppleik, á 26 mínútum skoraði hún 22 stig, tók 7 fráköst, stal 7 boltum og gaf 7 stoðsendingar. Birna var drjúg í stigaskoruninni, eins og venjulega, hún gerði 25. Anna María skoraði 13. Bryndís var með 9 (stig) og 8 (frák), María Ben með 8 og 8. Helga Jónsdóttir skoraði sína fyrstu körfu í meistaraflokk, negldi niður þristi skömmu eftir að hún kom inná. Munurinn í hálfleik var 18 stig og í seinni hálfleik hélt bilið áfram að breikka og niðurstaðan var 34ra stiga útisigur, 97-63.

Tölur úr leiknum eru hér.

Sverrir Þór þjálfari var að vonum ánægður með læridætur sínar, hann gaf öllum tækifæri á að spila og hélt hröðum leik gangandi allan tímann. "Þegar við höldum einbeitingunni í pressuvörninni er erfitt að spila á móti okkur" sagði Sverrir og sagði að stúlkurnar væru komnar með hugann við úrslitaleikinn í Hópbílakeppninni sem fram fer á laugardaginn gegn ÍS í DHL-höllinni í Vesturbænum.