Fréttir

Körfubolti | 29. mars 2003

Enn eitt burstið í Sláturhúsinu þegar Keflavíkurkonur unnu KR í fyrsta leik 2003 úrslitanna

Stelpurnar fylgdu góðu fordæmi drengjanna í úrslitakeppninni og tóku fyrsta leikinn í úrslitunum með trompi - þær gjörsigruðu Íslandsmeistara KR með 28 stigum, 75-47, eftir að hafa leitt með 16 stigum í hálfleik, 40-24.

Keflavíkonur hófu leikinn í dag af miklum krafti og leiddu strax með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 21-13. En ákveðnin tók sinn toll og fljótlega í öðrum leikhluta þurfti Erla Þorsteinsdóttir að hvíla þar sem hún var komin með þrjár villur. Anna María tók þá við því erfiða hlutverki að dekka Jessicu Stomski sem er mikil burðum og öflug undir körfunum. Stúlkurnar héldu þó sínu striki og áhorfendur voru sáttir með 16 stiga forystu í hálfleik.

Þriðji leikhlutinn var hins vegar slakur hjá okkar stúlkum og náðu KR-ingar að saxa verulega á forskotið. Sóknarleikur Keflavíkur stirðnaði og KR skoraði 12 stig gegn 7. En Kristín Blöndal náði að smella ævintýralegri 3ja stiga körfu á síðustu sekúndum leikhlutans og tryggði þannig 15 stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann.

Lokakaflinn var síðan algerlega eign okkar stúlkna sem hertu varnarleikinn til muna og keyrðu upp hraðann. Rannveig átti frábæran sprett þar sem hún gerði 10 stig í röð á nokkrum mínútum. KR-ingar urðu ráðvilltir og nýttu þar að auki illa færin sín. Því dró enn frekar í sundur með liðunum og í lokin var munurinn 28 stig.

Sonia kominn fram hjá Hönnu og Anna María í góðri stöðu ef skotið geigar

Stóru stelpurnar, Erla Þorsteins og Anna María áttu góðan leik gegn Stomski sem voru frekar mislagðar hendur undir körfunni, skoraði aðeins úr 6 af 22 skotum. Anna María skoraði 10 stig, tók 12 fráköst og átti 6 stoðsendingar. Birna og Erla voru drýgstar við stigaskorunina, settu 15 stig hvor og auk þess voru Sonia og Svava öflugar í vörninni sem og allar hinar, enda áttu KR-ingar í miklu basli allan leikinn.

Heilt yfir var sigurinn öruggur og KR átti aldrei séns. En þó er líklegt að KR-stúlkur muni hitta betur í næsta leik, mánudaginn kl. 19.15, sem verður eflaust jafnari. Staðan er nú 1-0 fyrir Keflavík og fjórir leikir eftir til að sækja tvo sigra til viðbótar. ÁFRAM KEFLAVÍK !!