Fréttir

Körfubolti | 6. nóvember 2003

Enn óvænt úrslit í Vesturdeildinni - Madeira vann Toulon fyrr í kvöld

Andstæðingar Keflvíkinga í B-riðli Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu, Madeira og Toulon áttust við í kvöld. Fyrirfram var búist við því að Frakkarnir í Toulon væru mun sterkari en Portúgalarnir, enda er Toulon í 10. sæti af 18 liðum í hinni sterku atvinnumannadeild Frakklands, en Madeira er í 11. sæti af 12 liðum í portúgölsku deildinni sem er ekki eins sterk. Við skulum ekki gleyma því að Frakkar urðu í 4. sæti í Evrópukeppninni í Svíþjóð í haust og voru álitnir afar sigurstranglegir. Portúgalar, líkt og Íslendingar, náðu hins vegar ekki að komast í keppnina.

En, hvort sem vanmat er orsökin eða ekki, ljóst er að margt fer öðruvísi en ætlað er. Madeiringar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Frakkana örugglega 111-92, eftir að hafa leitt í hálfleik 56-46. Sannarlega óvænt. Og við munum líka að Ovarense vann Madeira um daginn á útivelli með 11 stiga mun, 106-95. Þetta hefur verið mikill skotleikur, því bæði lið skoruðu 15 3ja stiga, og Madeira var með 60% hittni sem verður að teljast hreint ótrúlegt, meira að segja á keflvískan mælikvarða.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Þetta segir okkur kannski . . . nei, best að segja sem minnst. En að minnsta kosti eru þetta verulega athyglisverð úrslit og efla okkar drengi eflaust til frekari dáða.