Fréttir

Körfubolti | 27. október 2005

Enn vandræði með flugsamgöngur

Í dag er ferðalagið til Riga í Lettlandi og þurftu okkar menn að taka tvær vélar þangað.  Davíð, Gunni E, Arnar F., Jonni og Sverrir vöknuðu eldsnemma í morgun og tóku flug til Lettlands.  Þeir hafa verið að spóka sig í borginni í dag og bíða eftir hinum.  Restin af hópnum átti pantað flug um kl. 20:00 að staðartíma en óheppnin eltir okkar menn ennþá, allanvegana hvað flugáætlanir varðar, því það er um 3 tíma seinkun á vélinni til Riga. 

Þeir eru hins vegar í góðu yfirlæti á flugstöðinni í Helsinki og láta vel af dvöl, síðast þegar heyrðist í þeim.