Er Leifur langbesti dómarinn?
Þegar 140 atkvæði hafa verið talin í skoðanakönnun heimasíðunnar er augljóst að þátttakendur telja Leif Garðarsson besta dómarann á landinu. Það er raunar athyglisvert hve afgerandi kosningu hann fær og verðum við að telja "sigur" hans nokkuð sannfærandi. Röð efstu manna er þessi:
- Leifur Garðars 40%
- Kristinn Óskars 15%
- "Einhver annar" 11%
- Sigmundur 8%
- Kristinn Alberts 6%
- Rögnvaldur 6%
- Aðrir minna
Gaman að velta því fyrir sér hvað geri Leif að svona góðum dómara, umfram aðra. Kannski að hann leyfir sér oft að brosa til áhorfenda og gefur sér tíma til að ræða málin við leikmenn og dómara. Kannski að hann hafi róandi áhrif á leikmenn sem þá röfla minna. Kannski hann sjái einfaldlega betur en hinir. Eða kannski eitthvað allt annað . . . .
En hvað sem þessu líður, þá bjóðum við alla dómarana ávallt hjartanlega velkomna til Keflavíkur og munum reyna af fremsta megni að taka þeim vel og vera kurteisir í þeirra garð. Nema náttúrulega ef þeir dæma illa . . nei, smá grín, við vitum að þeirra starf er oft erfitt og stundum vanþakklátt. En menn lifa sig inn í leikinn og stundum fá dómararnir gusur frá leikmönnum og áhorfendum, en yfirleitt er allt slíkt sagt í hita leiksins og ekki illa meint. Þó má ugglaust koma því á framfæri við keflvíska áhorfendur að þeir reyni að halda aftur af sér í háværri gagnrýni á dómara. Hins vegar má auðvitað ræða þeirra frammistöðu að leik loknum og gagnrýna, rétt eins og frammistöðu leikmanna sjálfra.