Erfiður útileikur hjá Keflavíkurstúlkum í kvöld
Fyrir skömmu vann Keflvík auðveldan sigur á Grindavíkurdömum í Keflavík. Þá var nýji Kaninn þeirra, Kesha Tardy, nýlent á landinu og náði ekki verulega að setja mark sitt á leikinn. En síðan fóru hlutirnir að gerast hjá Grindavík og sú nýja hefur gersamlega snúið liðinu við, enda gerir hún um 30 stig á leik og tekur fjölda frákasta. Grindavík hefur nú unnið fjóra leiki í röð og ætla sér örugglega stóra hluti gegn nýkrýndum bikarmeisturum í kvöld.
Okkar stúlkur náðu þeim skemmtilega árangri um daginn að verða Bikarmeistarar með einum lélegasta leik sem þær hafa leikið lengi. En þær sýndu mikinn sigurvilja og áræðni sem skilaði titlinum. Nú er Bikarstressið að baki og vonandi ná þær aftur að sýna það sem í liðinu býr, líkt og þær hafa oft gert á undanförnum vikum. Fyrsti leikurinn eftir Bikartitil er stundum erfiður, þar sem leikmenn eru kannski ekki komnir almennilega niður á jörðina, en stúlkurnar eru vanar að fagna góðum sigrum og ættu að geta einbeitt sér að verkefninu í kvöld. Ef þær mæta grimmar til leiks og keyra upp hraðan þá munu þær eiga góðan séns á sigri.