Erla kjálkabrotin
Eftir myndatökur og skoðun í gær kom í ljós að brot hafði komið aftarlega í kjálkann hjá Erlu við olnbogaskot ÍR-Kanans á þriðjudag. Höggið var gríðarþungt og líklega hefur kjálkinn farið úr lið en smollið nánast samstundis í liðinn að nýju.
Kjálkabrot sem þetta er ekki meðhöndlað á annan hátt en að bíða og láta beinin vaxa saman að nýju. Slíkt tekur líklega nokkrar vikur, en mikilvægt er að forðast höfuðhögg á meðan :).
Erla er enn frekar aum í kjálkanum en ætlar að reyna að hefja rólegar æfingar á næstu dögum. Hún verður ekki með gegn KR á laugardaginn og ómögulegt að segja hvenær hún hefur leik að nýju. Erla er þó hörkutól og vonumst við eftir því að sjá hana sem fyrst aftur í Keflavíkurtreyjunni.