Fréttir

Körfubolti | 24. nóvember 2003

Erla með 32 stig í 72-59 sigri á KR

Keflavíkurstúlkur hófu leikinn gegn KR ágætlega í kvöld, en fljótlega jafnaðist hann. Í hálfleik var næstum jafnt, 27-26 og hnífjafnt eftir þrjá leikhluta, 46-46. En þegar nokkrar mínútur voru liðnar af síðasta leikhlutanum þá tóku stúlkurnar að leika hraðar og markvissar og uppskáru öruggan 13 stiga sigur, 72-59.

Leikurinn var frekar slitróttur framan af, bæði í vörn og sókn, en sem betur fer jókst áræðnin í lokin. Erla Reynisdóttir var öflug í lokin, sótti inn í vörnina og skapaði usla. En það var hin Erlan, Þorsteinsdóttir, sem var yfirburðamaður á vellinum í kvöld. Hún var eins og kóngur í ríki sínu undir körfu KR-inga og skoraði alls 32 stig. Einnig voru þær Anna María, 11 stig og 13 fráköst og Birna, 6 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar, grimmar í baráttunni, þótt skotnýting þeirra hafi kannski ekki verið upp á það besta. Það sama má reyndar segja um allt liðið, fyrir utan Erlu, því stúlkurnar tóku 63 2ja stiga skot og hittu aðeins úr 27 sem er 42% nýting. Og þrátt fyrir tíu tilraunir tókst þeim ekki að skora þriggja stiga körfu (!) sem er fáheyrt. En það var baráttan í lokin og áræðnin sem skóp sigurinn, þrátt fyrir slaka hittni.Rannveig átti góða spretti og skilaði 10 stigum í sarpinn. Kristín Blöndal lék ekki með í kvöld.

Hjá KR voru þær Katie Wolf og Hildur Sigurðardóttir yfirburðamanneskjur, þótt þeirra hafi verið ágætlega gætt lengst af. Með þessum leik náðu stúlkurnar að hefna fyrir ósigurinn í fyrstu umferðinni, en næst leika þær gegn ÍS og sá leikur snýst um toppsætið í deildinni.

Hér má sjá tölur í leiknum.