Fréttir

Körfubolti | 14. janúar 2004

Erla MVP - Keflavíkurstúlkur áberandi í stjörnuleik kvenna sem endaði með stórsigri Suðursins, 99-78

Þær voru áberandi, stúlkurnar okkar, í fyrsta All-Star leik kvenna á Íslandi, svokölluðum Stelpuslag 2004. Leikurinn var jafn framan af en í seinni hálfleik stakk "Suðrið" af og vann 21 stigs sigur, 99-78.

Erla Þorsteinsdóttir var valin "maður leiksins", MVP, skoraði 14 stig, tók 10 fráköst og varði 4 skot. Birna Valgarðs var stigahæst með 17 stig, en hinar Keflavíkurdömurnar stóðu sig einnig vel. Anna María með 11 stig og 10 fráköst, Erla R með 8 stig og 8 stoðsendingar, Marín gerði 6 stig og María Ben 4.

Hér má sjá tölfræði leiksins.

Síðan gerði Anna María sér lítið fyrir og vann 3ja stiga skotkeppnina, enda með afbrigðum hittin stúlkan sú . . .

Til hamingju með góðan árangur stúlkur . . . og svo er það bikarinn!