Fréttir

Körfubolti | 26. október 2005

Erla snýr aftur heim

Erla Þorsteinsdóttir hefur haft félagskipti yfir í Keflavík.  Erla hefur allan sinn feril leikið fyrir Keflavík fyrir utan síðasta tímabil þar sem hún lék með Grindavík. Þetta er mjög góður liðstyrkur að fá Erlu heim, þar sem hún hefur verið með bestu leikmönnum landsins undanfarinn ár. Félagsskiptin taka mánuð og hún ætti að verða lögleg 25 nóv.  Við bjóðum Erlu velkomna aftur heim til Keflavíkur.