Fréttir

Körfubolti | 15. október 2003

Erla Þorsteinsdóttir fékk heilahristing eftir höfuðhögg

Svo illa vildi til undir lok fyrsta leikhluta að bandarískur leikmaður ÍR, Eplunus Brooks, rak olnboga sinn af miklum þunga í andlit Erlu Þorsteinsdóttir sem hné niður við höggið. Það skal þó tekið fram að olnbogahöggið var ekki af ásetningi gert. Erla var með óráði eftir höggið og gat vart gengið. Enda þurfti að kalla til sjúkrabíl til að flytja hana á sjúkrahúsið til aðhlynningar. Þær fréttir bárust af ástandi Erlu að hún hafði fengið heilahristing, en ekki var meira vitað um meiðsli hennar þegar þetta er skrifað. Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg. Erla er mikið hörkutól og verður vonandi fljót að jafna sig, ef þess er kostur. Við sendum henni bestu kveðjur.