Ert þú á leið til Billund með Iceland Express
Borgar-skotleikur Iceland Express hefur slegið í gegn hjá okkur í ár rétt eins og í fyrra. Nú þegar hafa tveir heppnir áhorfendur unnið sér inn ferðavining á leikjum hjá okkur og áfram heldur fjörið. Mundu svo eftir að neðar á síðunni okkar getur þú bókað ferð með Iceland Express.
Á leiknum í kvöld verður skotið upp á ferð með Iceland Express til Billund. Billund í Danmörku er vinalegur og fjölskylduvænn bær sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Lególand á landamæri að Danmörku og er mikill samgangur milli ríkjanna tveggja, og eftir því góðar samgöngur milli Billund og helstu borga Danmerkur. Svo vill reyndar til að flest sem Danir geta státað sig af er einnig til í Lególandi, þótt í smærri útgáfu sé. Legókallar eiga sína Amalíuborg, sína Nýhöfn og Sívalaturn. Og reyndar eiga þeir líka Frelsisstyttu og Taj Mahal, svo eitthvað sé nefnt.
Það er óþarfi að leita langt yfir skammt — Billund hefur það allt!