Fréttir

Körfubolti | 4. desember 2003

Eru Woudstra og Lewis bestir?

Fjölmargir tóku þátt, að vanda, í könnun okkar þetta skiptið. Spurt var hver væri besti Kaninn í INTERSPORT-deildinni um þessar mundir. Við vitum að spurningin er kannski ósanngjörn, því fæstir hafa séð alla leika. Hvað um það, þetta er mest til gamans gert. Bakverðirnir af Suðurnesjum, þeir Brandon Woudstra og Darrel Lewis, hlutu flest atkvæði, enda hafa báðir staðið sig með afbrigðum vel í haust. Það er reyndar skoðun Heimasíðunnar að Lewis sé betri alhliða leikmaður en Woudstra, en það verður ekki af þeim síðarnefnda tekið að hann er fanta skytta og góður skorari. Okkar maður, Derrick Allen, lenti í 3ja sætinu. Hann er enginn "stjörnuleikmaður", en gerir sitt og gerir það vel og flestir kunna að meta hans framlag til liðsins. Kíkjum á niðurstöður könnunarinnar:

  1. Brandon Woudstra, Nja., 32%
  2. Darrel Lewis, Gri, 24%
  3. Derrick Allen, Kef, 14%
  4. Adam Spanich, KFÍ, 9%
  5. Nick Bradford, Kef, 6%
  6. Michael Manciel, Hau, 4%
  7. Cedrick Holmes, Brei, 3%
  8. Leon Brisport, Þór, 2%

 . . og aðrir minna . . .

Við munum taka stöðuna aftur þegar líður á leiktíðina.