Eurocup Challenge: Lappeenranta vann BK Riga í hörkuleik
Fyrsti leikurinn í C riðli Eurocup Challenge keppninnar var í kvöld þegar Lappeenranta frá Finlandi tók á móti BK Riga frá Lettlandi. Um eitt þúsund áhorfendur urðu vitni að háspennuleik þar sem forystan sveiflaðist á milli liðanna. Gestirnir frá Riga byrjuðu betur og leiddu 21-15 eftir fyrsta leikhluta, en heimamenn komu grimmir tilbaka og náðu forystunni í hálfleik 43-40. Með herkjum hengu þeir á forystunni til leiksloka og sigruðu með fjögurra stiga mun, 72-68.
Finnska liðið er borið uppi af fjórum leikmönnum og fremstur í þeirra flokki í kvöld var finnski framherjinn Riihela sem skoraði 24 stig og hirti 14 fráköst, en hann setti einnig niður fjóra þrista. Reyndar virðast Finnarnir treysta mikið á þriggja stiga skyttur sínar ef marka má þá staðreynd að þeir tóku 37 skot fyrir utan línuna sem telst frekar mikið, meira að segja á keflvískan mælikvarða. Ekki var þó hittnin að þvælast fyrir þeim í þessum leik, því aðeins fóru 11 skot niður. Þessir fjórir burðarásar liðsins skoruðu öll stigin nema sex.
Lettarnir virðast vera með jafnara lið, þó aðeins hafi þeir mætt með 10 manns í leikinn. En allir léku og allir skoruðu nema einn. Stigaskorið dreifðist og sá sem var stigahæstur var hávaxinn framherji, Berzins að nafni (2,11), en hann gerði 12.
Við vissum að finnsku meistararnir eru sterkir, en af úrslitum þessa leiks má ráða að Lettarnir séu ekki mikið síðri. Skemmtilegir tímar framundan fyrir Keflavíkurpilta, svo mikið er víst!