Fréttir

Körfubolti | 24. janúar 2004

Evrópuævintýrið er úti! Slök hittni varð Keflavík að falli gegn geysisterku liði Dijon

Þar kom að því að Keflavík tapaði á heimavelli, en það gerðist síðast fyrir rúmu ári, þann 7. janúar 2003. Andstæðingarnir voru JDA Dijon frá Frakklandi í öðrum og seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu. Lokatölur í leiknum voru 91-106, en í hálfleik var staðan 49-54. Dijon vann fyrri leikinn í Frakklandi 104-92 og hefur þar með tryggt sér þátttökurétt í Final Four í Vesturdeildinni, en þátttöku Keflvíkinga er lokið.

 

Það var öllum ljóst að Keflavík þyrfti á topp leik að halda til að eiga möguleika gegn firnasterku liði Dijon. En okkar menn náðu ekki að sýna allar sínar bestu hliðar og því fór sem fór. Helst var um að kenna slakri hittni úr 2ja stiga skotum, en aðeins rötuðu 18 rétta leið af 59 sem er um 31% hittni. Ástæðan er kannski sú að varnarmennirnir voru hávaxnir og gerðu okkar mönnum erfitt fyrir. Derrick sem leikið hefur manna best í þessari keppni, hitti t.d. sérlega illa, aðeins úr 9 af 31 skoti. En hann átti samt prýðilegan leik drengurinn, skoraði 22 stig og hirti 14 fráköst.

Eins má segja að ekki hafi tekist að ráða við sóknarmenn franska liðsins, en það var einkar erfitt þar sem þeir gátu jöfnum höndum skorað í teignum, sett niður þrista og keyrt upp hraðan. Reyndar má segja að Frakkarnir hafi verið fljótari en við og þeir keyrðu yfir okkur, en ekki öfugt, eins og kannski var vonast eftir. Þar fóru fremstir í flokki leikmenn númer 5 og 7, þeir Morlende og Barret sem skoruðu 19 og 25 stig. Hreint frábærir körfuboltamenn báðir tveir, enda er Morlende á samningi hjá Seattle Sonics. Hann var valinn númer 40 í nýliðavalinu í sumar, en er "geymdur" hjá Dijon meðan hann tekur út þroska. Barrett er svaka "player" en hann er þó óþarflega skapstyggur og var honum fleygt úr húsi í lokin fyrir fáránlega árás á Arnar Frey. Stefanski (númer 11 ) og Monnet (númer 15) voru öflugir undir körfunum og gerðu 26 og 18 stig. Samtals gerðu þessir fjórir menn 88 stig fyrir Dijon

.

Dijon hafði forystu nánast allan leikinn. Í fyrri hálfleik fór hún upp og niður og var 5 stig í hálfleik. Þriðji leikhlutinn var hins vegar sá slakasti hjá okkar mönnum og munurinn fór upp í 14 stig, líkt og var í lokin. Samt kviknaði vonarneisti hjá Keflvískum áhorfendum, sem voru fjölmargir í kvöld, um 900 manns, þegar munurinn minnkaði niður fyrir 10 stig og allt virtist mögulegt. Þá fór í gang hálfgerður skrípaleikur þar sem Nick fékk m.a. tvær tæknivillur og varð að yfirgefa völlinn. Nick skildi hvorki upp né niður í seinni tæknivillunni, hann sagðist hafa spurt dómarann hvort hann mætti tala við hann, en hinn dómarin tók þá af skarið og gaf honum tæknivillu fyrir að halda áfram að tuða. Þetta var frekar harkalegur dómur að okkar mati og í kjölfarið fengu Frakkarnir mörg víti og vonin um sigur varð að engu.

3ja stiga hittni okkar manna var þó verulega góð í þessum leik, 13 af 25 eða 52%. Gunni setti fjóra þrista, Nick þrjá og þeir Halldór og Magnús tvo hvor. Halldór átti sérlega góða innkomu í fyrri hálfleik og setti niður 11 stig á stuttum kafla, tvær körfur eftir sóknarfráköst og síðan smellti hann niður tveimur þristum að auki. Frábær kafli hjá þessum unga og efnilega leikmanni sem er að verða að alvöru leikmanni. Halldór tók auk þess 5 fráköst í leiknum. Evrópukeppnin hefur gert Halldóri verulega gott, á því er enginn vafi.

Kanarnir okkar, þeir Nick og Derrick, hafa yfirleitt leikið betur í Evrópukeppninni en í kvöld, sérstaklega var hittnin slök, eins og áður sagði. Samt gerðu þeir 18 stig (Nick) og 22 (Derrick) og ekki er hægt að reikna með 30 stiga leikjum frá þeim daginn út og inn. Reyndar má segja að jákvætt sé að stigaskorið hafi verið jafnara en í síðustu leikjum þar sem 5 leikmenn skoruðu yfir 10 stig og einn skoraði 9. Verst að það dugði ekki til!

Af Keflvíkingunum var Gunnar E bestur, ásamt Halldóri, sem átti sinn besta leik með mfl. karla hingað til Gunnar vakti athygli Frönsku stjórnarmannanna sem töluðu afar vel um hann að leik loknum, fannst hann góð skytta og öflugur leikmaður. Gunni gerði 14 stig í leiknum og var síógnandi. Hjörtur var sprækur undir lokin, setti þá flest af sínum 11 stigum, en hefði mátt ógna meira fram eftir leiknum, hann er góður skorari og verður að láta meira að sér kveða. Sama má segja um Jonna sem varla horfði á körfuna. Jonni barðist vel eins og ávallt en átti undir högg að sækja gegn sér stærri og sterkari mönnum. Magnús var ágætur, skoraði 9 stig, en var í strangri gæslu. Sverrir barðist vel en setti kannski ekki mark sitt á leikinn í þetta skiptið. Arnar og Davíð léku síðustu 3 mínúturnar og átti Arnar góða spretti, skoraði m.a. 3 stig og lék stífa vörn.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú er þessu ævintýri lokið. Árangurinn var frábær, þótt vissulega hefðum við átt möguleika á að vinna Dijon á heimavelli. Helstu vonbrigðin, eftir á að hyggja, eru kannski að hafa hent frá okkur sigrinum í útileiknum gegn Madeira, en sigur þar hefði skilað okkur í efsta sæti riðilsins og gefið okkur heimaleikjaréttinn í 8 liða úrslitunum. En við unnum þrjá leiki af átta, unnum alla heimaleikina nema einn og sýndum og sönnuðum að félagslið skipað áhugamönnum frá litla Íslandi á fullt erindi í topp atvinnumannalið frá Evrópu. Þessi þátttaka okkar hefur verið stórt og mikið verkefni sem tekist hefur vel í alla staði. Greinilegt er líka að stuðningsmenn kunnu vel að meta þetta framtak því Evrópuleikirnir hafa verið þeir lang best sóttu og skemmtilegustu það sem af er vetri. Nú fer þetta í reynslubankann og nýtist okkur vonandi vel í komandi átökum í deild og bikar.

Áfram Keflavík!!