Evrópuhappadrættismiðar seldir á leiknum í kvöld
Keflavík mætir Þór frá Akureyri í kvöld kl.19.15 í Sláturhúsinu í Keflavík. Þórsarar er nýliðar í deildinni í ár og hafa farið ágætlega af stað og eru í 8. sæti Iceland Express-deildar. Þór hefur verið á góðu róli í síðustu leikjum og unnið bæði KR og Hauka. Keflavíkingar mæta örugglega grimmir í þennan leik enda töpuðu við óvænt fyrir Snæfelli í síðasta leik. Þess má geta með Þórsurum leikur gamall Keflavíkingur Þorsteinn Húnfjörð. Þorsteinn hefur verið að leika vel fyrir Þór og skorað 9 stig og tekið 6 fráksöst að meðaltali í vetur.
Nú er hið árlega Evrópuhappadrætti farið af stað. Miðar verða seldir á leiknum í kvöld og svo áfram næstu daga. Happadrættismiðinn gildir sem aðgöngumiði á Evrópuleikinn næsta fimmtudag, þar sem við mætum CAB Madeira frá Portugal. Miðinn á þann leik kostar 1000 kr. svo þú ert bara að borga 500 kr. fyrir happadrættismiðann!!
Vinningar eru glæsilegir að vanda: Flugmiði, 2x 25.000 ferðaávísanir frá MasterCard, alþrif fyrir bílinn hjá SG Bóni, og síma frá símanum.
Allir á leikinn og muna að taka með sér pening. Áfram Keflavík.