Evrópukeppni. Keflavík-Reims
Fyrsti leikur okkar í Evrópukeppninni er núna á miðvikudaginn 3 nov. Þá koma Reims frá Frakklandi til okkar í heimsókn. Í liðið Reims eru margir góðir leikmenn td. RYAN FLETCHER 205 sm og 110 kg, CAMARA Souleymane 210 sm og 111 kg og FEIN Shaun 191 sm 91 kg svo einhverjir séu nefndir. Það ber öllum saman um að leikirnir á síðasta tímabili hafi verið hin besta skemmtun og stemmingin frábær. Góð mæting var einnig á leikina og greinilegt að fólk kann að meta að sjá góða leiki. Það er einmitt það sem þessir leikir báru með sér að þarna er góð lið og góður körfubolti. Keflavík gekk sem kunnugt er vel í þessari keppni og vann alla heimaleiki sína í ríðlinum. Keflavík komst áfram úr riðlinu og lenti á mót firna sterku liði að nafni Dijon frá Frakkalandi. Dijon komst síðan áfram og vann vestur deildina og komst í úrslitaleikinn á móti Mitteldeutser bc. Þar hafði Mitteldeutser bc. betur og varð þar með meistari. Liðin sem nú er með okkur í riðli eru Reims, Madeira frá Portugal og Bakkens frá Danmörku. Öll mjög sterk lið. Þannig að Keflavik þarf að eiga góðan leik og að fá mikin stuðning frá áhorfendum, þá er allt mögulegt eins og við vitum. Allir heimaleikirnir 3 spilast á tiltölulega stuttum tíma. Fyrsti núna á miðd. svo á móti Madeira 10 nov. og síðan koma Danirnir í Bakken bears 18 nov og spila við okkur. Það verður ýmislegt til skemmtunar gert á leiknum á miðd. og að sjálfsögðu verða Jói, Beggi og hinir trommarirnir á svæðinin að halda uppi stemmingu. Það er sem sagt veisla fram undan og allir í sláturhúsið og ÁFRAM KEFLAVÍK.
v.s