Fréttir

Körfubolti | 3. nóvember 2005

Evrópuleikur í Keflavík í kvöld

Keflavík mætir í kvöld Finnska liðinu NMKY Lappeenrante í Eurocup Challenge. Þetta er þriðji leikur okkar í ár og fyrsti heimaleikurinn.  Leikurinn í kvöld hefst kl. 19.15 og má búast við góðri stemmingu eins og síðustu  ár.  Í margra augum eru þetta skemmtilegustu leikirnir, mikil barátta og frábær tilþrif hafa einkennt þessa leiki.

Keflavík tapaði sem kunnugt er fyrir Lappeenranta í leiknum í Finnlandi.  Í þeim leik skoraði AJ 24 stig, Maggi 16 og Adrian Henning 14 stig. Lappenrante er með mjög gott lið og marga góða leikmenn. Þar ber helst að nefna Andre Forman sem átti mjög góðan leik á móti okkur, skoraði 24 stig og tók 10 fráköst. Forman er 200 sm en er einnig góð skytta og skoraði ma. 3 þriggja stiga körfur á móti okkur úti.  Pasi Riikele er einnig öflugur leikmaður. Pasi er Finnskur landsliðsmaður og stighæsti leikmaður Lappenrante. Hann skoraði 16 stig, tók 8 fráköst og átti þrjá þrista.  Daninn Colman reyndist okkur líka erfiður úti. Colman er ungur aðeins 21árs og spilaði áður með Bakken, skoraði 13 stig, tók 6 fráköst, átti 6 stoðsendingar og setti 2/4 niður fyrir utan línuna. Hinn Kaninn þeirra Williams er einnig sterkur leikmaður. Williams skoraði 15 stig og tók 8 fráköst.

Keflavík þarf að eiga góðan leik til vinna Lappeenrante svo mikið er víst, enda er liðið mjög sterkt í öllum stöðum.  Breiddin er kannski ekki svo ýkja mikil, þvíþeir hafa verið að keyra á fáum mönnum. Td. lék Forman 37 mín. á móti okkur í Finnlandi.  Þeir hafa líka marga leikmenn sem geta hitt vel fyrir utan 3 stiga línuna og þarf því að passa það vel. Þeir skoruðu 13 slíkar á móti okkar úti og nýtingin 35 %.

Nú er bara að fylla Sláturhúsið og láta vel í sér heyra, því KFUM strákarnir eru ekki vanir að spila við slíkar aðstæður.  ÁFRAM KEFLAVÍK.